Racebensin.com
Supreme
SUNOCO SUPREME (114RON, 110MON og 0% súrefni) BLÝBENSÍN.
Há octan og hágæða bensín hannað sérstaklega fyrir kappakstur.
Sunoco Supreme var opinbert bensín fyrir allar NASCAR keppnir fram til
ársins 2007 (þeir nota núna blýlaust Sunoco 260GTX).
Hannað fyrir keppnisvélar með þjöppu upp að 16:1 og sem eru mjög oft á
háum snúning 7000-10000 rpm. Það hefur að auki viðbótar íblöndunar efni
sem halda blöndungum og spíssum hreinum á sama tíma stjórnar það
yfirborðs kveikingu fyrir hámarks afl. Þetta hreina og hraðbrennandi bensín
skilur enga eða nánast engar sótagnir eftir sem gefur nákvæmari vélar
tjúningu fyrir hámarks afl. Mikið notað í allar gerðir af keppnisvélum ásamt
turbo vélum.
Mjög gott að blanda saman við blýlaust bensín til að auka blýmagn og octan
magn (virkar mikið betur en octan booster)
Ætlað fyrir:
• Háþjöppu hásnúnings vélar,
• Keppnis bíla, kvartmílu, torfæru vélar, mótorhjól og go-kart,
• Eldri keppnisvélar sem þurfa blý,
• Turbo vélar,
• Keppnismótorhjól.
Til baka
Bensín