SUNOCO MAX NOS (119RON, 113MON) BLÝ BENSÍN.
Max nos er nýjasta varan í keppniseldsneytis línuni frá Sunoco og kemur í
staðinn fyrir Supreme Nos. Allir keppendur sem hafa áður notað hið vinsæla
Supreme Nos hafa fundið aflaukningu og lægri ¼ tíma með hinu nýja Max Nos.
Sem er vegna hærri þéttleika og að það er ekki með neinu súrefnisinnihaldi
(sem er ekki gott fyrir nitro vélar). Max Nos er öruggt að nota í staðin fyrir
supreme nos. En með því að þynna blönduna (lean) um ca 1% myndi auka aflið
til muna, en auðvitað er vert að muna með leiðbeiningar að engin vél er eins,
þannig að það þarf að fylgjast vel með allri breytingu á blöndu.
Max Nos er sérstaklega blandað fyrir vélar sem eru keyrðar með nitro gasi,
turbo og blásara. Það er með mjög háa octane tölu og mjög þétt í sér sem
hjálpar mjög mikið að verja vélina þegar nos er notað. Þetta bensín sem er
með þessum vandlega völdum eiginleikum og mjög hraðbrennandi blöndunar
kúrfu gerir það að mjög góðu vali fyrir mikið tjúnaðar kvartmílu og torfæru
vélar og eykur aflið mjög mikið miðað við sambærileg há octane bensín. Það
blandast öllu dælubensíni (fyrir þá sem vilja hækka octane í venjulegu bensíni)
og gefur mjög góða vörn gegn banki eða forkveikingu. Ath. þetta er blý bensín.