Racebensin.com
260GT Plus
SUNOCO 260GT PLUS (109RON, 99MON, 4.5% OXYGEN) BLÝLAUST.
Þetta er fyrir þann sem vill bensín með miklu súrefnisinnihaldi, mikið octan,
blýfrítt og hreinni bruna. Þetta bensín er það sem scca notar og samþykkir fyrir
sínar móta- sjóketti, mótorhjól ofl.
Og í raun munu vélar með mikin vélarsnúning og þjöppu upp að 14:1 auka aflið
mjög mikið með þessu kraftmikla, hreina og hraðbrennandi bensíni. Það er
með miklu súrefnisinnihaldi til að bæta öndun og aflaukningu, sérstaklega í
vélum með þrengingum í loftintaki og gefur snarpari viðbragð við inngjöf. Það
blandast öllu dælubensíni (fyrir þá sem vilja hækka octan magn í venjulegu
bensíni) og eykur vörn gegn kveikjubanki eða forkveikingu. Passar líka fyrir
litlar vélar með blöndungum og tvígengisvélar. Það er blýlaust og inniheldur
ethanol til halda súrefni í sér.
Nýlegar tilraunir hafa sýnt að Sunoco 260GT Plus gefur mjög mikla aflaukningu
sérstaklega í turbo vélum sem eru með mjög mikið boost (Nissan Skyline drag
cars etc).
Enda er þetta bensín mjög mikið notað á japanska tjúnings markaðnum þar
sem er búið er að tjúna götubíla með turbo, blowerum og nitro.
Ath. Að vegna hversu hönnunin á þessu kraftmikla bensíni er, þá er það mjög
óstöðugt í eðli sínu. Gæta verður að ekki komi eldur nálægt eða mjög mikið
sólskin og ekki geyma brúsa opna lengur en þörf krefur. Ekki er ráðlagt að vera
með þetta bensín lengur en 48 klukkutíma á tank bílsins í einu nema hann sé
mjög loftþéttur.
Til baka
Bensín